I know I can dance og piss í kopp
Já loksins loksins tókst okkur að láta Hrafnkel pissa í kopp, verð samt að leyfa Gumma að hafa heiðurinn þar sem hann var vitni af þessum tímamóta atburð. Því endalaust hefur barnið setið á koppnum en ekki hefur hann viljað spreða einum dropa í þennan hátæknikopp sem við fjárfestum í handa frumburðinum fyrir allnokkru síðan.
Drottningin á heimilinu brá undir sig betri fætinum með Láru í gær Laugardag, en við fórum á "So you think you can dance" show-ið, en þetta eru top 10 dansararnir úr þessum raunveruleikaþætti sem eru að túra um bandaríkin. Þetta var frábært show í alla staði, og ég á mér meira að segja uppáhalds núna.. en það eru Sabra og Danny.. jú svo var Dominic líka skemmtilegur karakter.
Horfði ekki á seríuna þegar hún var og hét en á mér samt uppáhalds.. soldið spes..
Hrafnkell er ofsalega góður við litla bróðir og montin líka, fórum öll á róló í morgun og ef hann ætti til fleiri orð þá hefði hann hrópað á gesti og gangandi: "Þetta er litli bróðir minn!"
Hann labbar oft að honum og kyssir hann alveg óumbeðinn, algjört krútt.
En ef Daníel grætur mikið þá missir Hrafnkell þolinmæðina, bendir á vögguna hans og segir baby-sofa.. þá á ég s.s bara að leggja hann frá mér og ýta á sofa-takkann.
2 Comments:
Ég verð að óska ykkur til hamingju með koppinn svona sérstaklega í ljósi undangenginnar umræðu :)
Takk takk, þú rétt getur ímyndað þér fagnaðarlætin..
Skrifa ummæli
<< Home