Boston fjölskyldan

Nokkur orð um lífið í Back Bay Boston

mánudagur, október 23, 2006

Flatbrauð og hangikjet..

Fékk alveg einstaklega skemmtilegt símtal í dag frá mömmu minni, hún var að tilkynna mér að hún kæmi degi fyrr, jibbí hún sem sagt kemur á morgun þriðjudag í stað miðvikudags og fer svo áleiðis til Begga bró og Esterar á Sunnudag.
Þar sem það er alltaf kvöldpössun innifalin í mömmuheimsókn vorum við fljót að finna okkur eitthvað sniðugt að gera, á laugardag ætlum við að láta langþráðan draum rætast og fara á Comedy klúbb, grín uppistand á góðri íslensku. Við ætlum að láta engan annan en Eddy Griffin kitla hláturtaugarnar, fengum skemmtanaglöðu Dodda og Ásdísi með okkur og Partýóða Lára ætlar einnig að heiðra okkur með nærveru sinni.
Hér koma nokkrar myndir af Hrafnkeli og Rhodes og þá sjáið þið markmið Gumma í skeggvexti, jamm svo sannarlega ekki leiðum að líkjast, þetta verður orðið vel fínt í brúðkaupinu hennar Helgu í júní.
Ég vil enda þennann pistil á góðri pikkupp línu sem ég heyrði í TV-inu..
"Do you know Karate 'cos your body's kicking.."

Pat að kenna Hrafnkeli og Rhodes rétta eldhústakta
Herra Brosmildur
Hrafnkell, Rhodes og Pat

2 Comments:

At 24/10/06 17:11, Anonymous Nafnlaus said...

hæhæ Elín úr mömmuklúbbnum hér, ég ætlaði að forvitnast, mamma er á leið til Boston og ég sá ða þið fóruð ða borða á House of Siam, ekki geturu sagt mér hvar hann er staðsettur :)

kv Elín

 
At 24/10/06 17:52, Anonymous Nafnlaus said...

House Of Siam er staðsettur á
542 Columbus Ave í South End.

Svo förum við líka á annan Thai sem heitir Bangkok City Restaurant hann er á 167 Mass Ave.

 

Skrifa ummæli

<< Home