Boston fjölskyldan

Nokkur orð um lífið í Back Bay Boston

fimmtudagur, ágúst 24, 2006

Morgunhanar!

Tja eða kannski meira morgunhani þar sem Hrafnkell neitar að snúa sólarhringnum við í einum svipan og vekur okkur foreldrana á slaginu 5, vonaðist nú til í nótt að þetta yrði allavega 6 þar sem hann lognaðist út af kl 19:00 í gærkveldi en nei nei fram vill hann klukkan 5 þrátt fyrir kolniðarmyrkur. Nú er klukkan 6:12 og ekki annað í stöðunni en að blogga smá meðan feðgarnir kíkja á næturdagskrána í sjónvarpinu.
Við höfum tekið upp úr töskunum og nú er stefnan tekin á Ikea og Home depot á næstu dögum þar sem okkur vantar standlampa í stofuna og svo ætlum við eitthvað að innrétta svalirnar okkar.
Ásdís og Doddi horfðu með okkur á Supernova úrslitin í gær þar sem þeim vantar enn tvo mikilvægustu hluti heimilisins: Sjónvarp og Sófa.
Ég læt hér fylgja með nokkrar myndir af því þær segja víst meira en mörg orð:

Feðgarnir bregða á leik

Á leið í búðina að versla í matinn

Diskinn og skeiðina náði hann sjálfur í upp úr ferðatöskunni hlammaði hann sér svo á ganginn og var í því að pota skeiðinni ofaní diskinn og stinga henni svo upp í sig, hann er greinilega pent að láta okkur vita að hann geti þetta alveg sjálfur.

2 Comments:

At 24/8/06 09:24, Anonymous Nafnlaus said...

Mér finnst Hrafnkell hafa stækkað síðan fyrir tveimur dögum. Það verður erfitt að hitta hann minna. Hvet ykkur til að vera dugleg að setja inn myndbönd.

 
At 24/8/06 16:36, Blogger Ósk said...

Hellú og velkomin heim!
Hrafnkell veit sko alveg hvað hann syngur!! Með allt á hreinu hann er svo klár!
Jæja maður er bara að fara til Köben á morgun (gaman gaman)!!
best að fara að pakka ;)
Knús og kossar Óskin og Makkinn!

 

Skrifa ummæli

<< Home