Amma Ása farin heim, Amma Halla komin
Jæja, það er aldeilis fjör í Bostonbæ, amma Ása "au pair" var hjá okkur í 10 daga í byrjun mars og nú er amma Halla "au pair" komin og ætlar að vera hjá okkur yfir páskana, þ.a það er ekki hægt að segja annað en að marsmánuður ætli að vera sannkallaður lúxusmánuður með tilheyrandi útsofi og ofgnótt af barnapössun.
Fengum bekkjarfélag hans Gumma, Mike ásamt Andreu konu hans og Jayden son þeirra sem er jafngamall Hrafnkeli í íslenskan lambahrygg síðastliðinn laugardag, buðum þeim að sjálfsögðu upp á íslenskan lakkrís, Freyju Hrís kúlur og kúlusúkk við mikil fagnaðarlæti, hvað er svosem annað hægt namminamm
Fyrir þá sem ekki vita er litla Bostonfjölskyldan á leið til Íslands til frambúðar í byrjun júní. Gamla settið útskrifast í maí, ég 2.maí en Gummi þann 17.maí. Gummi byrjar að vinna fyrstu vikuna í júní en ég ætla að vera heima með Daníel Sölva til 1.ágúst.
Hér koma nokkrar myndir til skemmtunar:

Amma Ása komin að knúsa strákana

Hrafnkell hjálpaði til við að setja saman nýja rúmið



5 Comments:
Hæ hæ hæ
Vei frábært að sjá myndir! Gaman að sjá að þið hafið loksins getað boðið upp á hrygginn :)
Og hvað verður ekki síðan partí á morgun í tilefni 25 D ?
Luv
helgs
Halló halló,
Elsku Magga innilega til hamingju með daginn!! 25D er bara góð tilfinning :)
mmmmmm langar í lakkrís!
Knús og klemm
Ósk bestaskinn og co
Til hamingju með afmælið elsku Magga!!
Gaman að heyra að þið séuð að flytja aftur heim, hlakka til að hitta ykkur aftur:)
Kv, Eyrún og co
Takk dúllurnar mínar;)
Elsku Magga mín!!!
Ég er nokkrum dögum of sein en til hammó með ammó 19. mars!!! Knús, koss og kram gamla gella! Ertu orðin krumpin?
Kveðja
Björg og co!
Skrifa ummæli
<< Home